Hilmir Freyr Heimisson (2271) var rétt í þessu að ná í sinn fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Hilmir vann danska FIDE-meistarann Tobias Rostgaard (2396) í lokaumferðinni á alþjóðlegu móti í Esbjerg. Hilmir hlaut 6½ í 9 skákum sem er sérdeilis frábær árangur.
Hinn ungi Hilmir, sem er aðeins 17 ára en hann fékk hálfum vinningi meira en hann þurfti í áfangann. Með frammistöðunni fer Hilmir í 2370 skákstig og verður útnefndur FIDE-meistari í nóvember nk
Hilmir hefur lagt mikla rækt við skáklistana síðustu misseri og er heldur betur að uppskera. Enda ná menn ekki slíkum árangri án mikillar ástundunar. Sannarlega góð fyrirmynd og um leið hvatning fyrir aðra unga skákmenn eins og yngsti stórmeistari landsins, Hjörvar Steinn Grétarsson, bendir á.

Henrik Danielsen (2502), stjúpfaðir Hilmis Freys, endaði í 2.-3. sæti á minningarmóti um Larsen sem lauk í dag í Álaborg. Hann gerði jafntelfi við Evgeny Svesnikov (2478) í lokaumferðinni.















