EM taflfélaga lauk í gær í Porto Carras í Grikklandi. Víkingaklúbburinn vann enska klúbbinn 3Cs með minnsta mun 3½-2½. Taflfélag Reykjavíkur gerði 3-3 jafntefli við enska klúbbinn KGSRL í lokaumferðinni. TR endaði í 25. sæti með 7 stig og Víkingaklúbburinn endaði í 44. sæti með 6 stig.

Í lokaviðureign TR vann Omar Salama (2254). Jafntefli urðu á fjórum borðum. Bragi Þorfinnsson (2433) tapaði fyrir Ivan Sokolov (2573) sem fékk borðaverðlaun fyrir frábæran árangur á öðru borði en Íslandsvinurinn hollenski hlaut 6 vinninga í 7 skákum.
Í viðureign Víkingana unnu Davíð Kjartansson og Páll A. Þórarinsson sínar skákir.
Árangur íslensku keppendanna var sem hér segir:

Rússneski klúbburinn, St. Petersburg, vann keppnina þrátt fyrir ömurlega frammistöðu Peters Svidlers sem þakkaði liðsfélögum sínum sigurinn í lokaræðunni!

Heimsmeistarinn grínast

Heimsmeistarinn, Magnús Carlsen, mætti í stuttbuxur í margar umferðirnar og stóð í einhverju stabbi við mótshaldarana.
Magnús gerði grín af aðstæðunum eins og sjá má í reitunum þar sem skrifuð eru nöfn andstæðinga í 3. umferð.

Magnús verður aðeins tveim stigum stigahærri en Caruana þegar þeir mætast í heimsmeistaraeinvíginu í London í nóvember nk.















