Skákdeild Fjölnis byrjar best al6lra á Íslandsmóti skákfélaga. Í gær náði félagið öðrum frábærum úrslitum þegar félagið vann 6½-1½ stórsigur á Skákfélagi Akureyrar. Fjölnir hefur 14 vinninga eftir 16 skákir.
A-sveit Skákfélagsins Hugins vann 7-1 sigur b-sveitinni og eru í öðru sæti með 12½ vinning. Þar vann Jóhanna Björg Jóhansdóttir (1886) óvæntan sigur á Lenku Ptácníkovu (2203). Íslandsmeistarar Víkingaklúbbins lögðu Breiðablik, Bolungarvík og Reykjanes að velli 6½-1½. Íslandsmeistararnir eru í þriðja sæti með 12 vinninga.
Önnur úrslit urðu þau að a-sveit Taflfélags Reykjavíkur vann b-sveitina 6½-1½ og Taflfélag Garðabæjar hafði sigur á Skákdeild KR með sama mun. Tískuúrslitin í gær því fjórum af fimm viðureingum lauk þannig.
Úrslit úrslit gærdagsins má finna á Chess-Results.

Aðrar deildir hófst í gær og lítið um gang mála þar að segja þegar aðeins einni umferð er ólokið.
B-sveit Víkingaklúbbsins er efst í 2. deild. Skákfélag Sauðárkróks og Taflfélags Vestmannaeyja eru efst í 3. deild og B-sveit Hróka alls fagnaða og unglingasveit Hugins í 4. deild.
Taflmennskunni á Íslandsmóti skákféalga verður framhaldið í dag kl. 11 og svo aftur kl. 17.













