Fyrstu skák heimsmeistaraeinvígis Magnúsar Carlsen (2835) og Fabiano Caruana (2832) lauk með jafntefli eftir mikla maraþonskák sem var alls 115 leikir!

Skákin hófst á spaugilegan hátt því leikarinn Woody Harrelsen, sem lék fyrsta leikinn, fyrir Fabi misheyrði hvað áskorandinn vildi leika og lék óvart 1. d4 í stað 1. e4. Caruana þurfti að biðja skákstjórann um leiðréttingu! Auk sem sem Woody virðist viljandi fella einn manna Bandaríkjamannsins. Enn í hlutverki gamanleikarans kannski!

Heimsmeistarinn tefldi Sikileyjarvörn sem er ánægjuleg tilbreyting Berlínarvörninni. Held að þetta sé í fyrsta skipi í heimsmeistaraeinvígi að Carlsen svarar ekki 1. e4 gegn e5.

Carlsen fékk fljótlega betri stöðu og virtist vera að innbyrða vinningin í kringum 35. leik í miklu tímahraki Bandaríkjamannsins. Þó fer hins vegar heimsmeistarinn að tefla ónákvæmt og glutraði vinningsstöðunni niður með nokkrum ónákvæmum leijum.

Hér hefði 36…Dg7! þýtt vinningsstöðu. Heimsmeistarinn lék 36…h4? og aftur hér:

38…Hg3! virðist vinna.

Hann reyndi lengi að vinna hróksendatafl með 3 peð gegn tveimur en Caruana var vandanum vaxtinn og hélt jafnteflinu.

Önnur skákin fer fram í dag og hefst kl. 15. Þá hefur Norðmaðurinn hvítt.

Ritstjóri bendir á vandaðar skákskýringar Sam Shankland á Chess.com. 

Ingvar Þór Jóhannesson fer yfir skákina á Youtube-vef sínum.

Hvar er best að fylgjast með einvíginu.

- Auglýsing -