Forystusauðirnir gerðu jafntefli í 12. umferðinni í gær. Mynd: Maria Emelianova/FIDE

Seinni dagur HM í hraðskák hófst núna kl. 11. Magnús Carlsen (2927) og Vladislav Artemiev (2825) voru efstir og jafnir eftir fyrri hlutann (12 umferðir af 21) með 9½ vinning. Carlsen var taplaus en gerði fimm jafntefi.

Í dag eru tefldar níu síðustu umferðirnar.

Ýmsar leiðir eru til að fylgjast með mótinu. Mótið er sýnt beint á NRK1/NRK2, þar sem megináhersla er lögð á heimsmeistarann.

Heimasíða mótsins er með prýðilegar beinar útsendingar á ensku. Chess24 er ávallt með afar vandaðar beinar útsendingar sem og Chess.com.

Nánar á Chess.com.

- Auglýsing -