Vignir Vatnar að tafli á Mön Mynd: John Saunders/heimasíða mótsins

Alþjóðlega mótið í Hastings er í fullum gangi. Að loknum þremur umferðum hefur Vignir Vatnar Stefánsson (2271) 2 vinninga en Guðmundur Kjartansson (2415) 1½ vinning.

Vignir hefur byrjað vel og hefur gert tvö jafntefli við stórmeistara. Annars við hinn litháíska Sarunas Sulkis (2525) og hinn serbeska Stefan Djuric (2371).  Guðmundur hefur 1½ vinning.

Mótinu er framhaldið í dag með fjórðu umferð sem hefst kl. 14:15. Þá teflir við Vignir við hollenska alþjóðlega meistarann Koen Leenhouts (2470).

- Auglýsing -