Magnús Carlsen (2939) sýndi sínar sparihliðar á HM í hraðskák sem lauk í gær. Magnús fór á kostum og hlaut 17 vinninga í 21 skákum. Taplaus á mótinu sem er nokkuð magnað í 21 skák. Í öðrum sæti varð Pólverjinn ungi og efnilegi, Jan-Krzysztof Duda (2694) aðeins hálfum vinningi á eftir heimsmeistaranum. Þessir tveir höfðu mikla yfirburði. Þriðji varð Hikaru Nakamura 2 vinningum á eftir Duda.

Kataryna Lagno (2560) varð heimsmeistari kvenna. Í öðru sæti varð hin íranska Sarasdat Khademalsharieh (2377) sem verður meðal keppenda á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu.


Mótshaldið virðist hafa verið FIDE til mikils sóma en rússneska skáksambandið var FIDE til aðstoðar við mótshaldið.

Chess.com segir svo:
Once again the venue was packed; according to FIDE official Emil Sutovsky each day about five thousand spectators came along but that sounded a bit exaggerated; our reporters on-site estimated between two and three thousand.
That’s still a very impressive number and possibly rather unique for chess events in modern times. Taking into account that the organizers had about three weeks to prepare everything, the event has been a huge success from an organisational point of view.
Nánar á Chess.com.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
- Chess-Results

















