Í tilefni af Skákdeginum 26. janúar var blásið til skákmóts fyrir börn sem haldið var í Brekkuskóla á Akureyri. Vakin var athygli á mótinu í þeim skólum þar sem skák hefur verið kennd í vetur.
Alls mættu 27 knáir skákkrakkar til leiks. Mótinu var tvískipt eftir aldri, en verðlaun veitt í alls fimm aldursflokkum. Tefldar voru sjö umferðir og umhugsunartími á skák sjö mínútur.
Í yngri hópnum tefldu 15 börn og þar urður þeir Sigþór Árni Sigurgeirsson og Jökull Máni Kárason efstir með sex vinninga. Í Eldri hópnum varð Ingólfur Árni Benediktsson efstur, einnig með sex vinninga.
Verðlaunahafar í einstökum aldursflokkum urðu sem hér segir:
Yngsti flokkur, börn fædd 2011 og síðar:
Sigþór Árni Sigurgeirsson 6
Alexía Lív Hilmisdóttir 3,5
Styrmir Sigfríðarson 2,5
Börn fædd 2010
Jökull Máni Kárason 6
Kári Hrafn Víkingsson 4,5
Hulda Rún Kristinsdóttir 4,5
Börn fædd 2009
Markús Orri Óskarsson 4
Emil Andri Davíðsson 4
Gunnar Logi Guðrúnarson 4
Eldri flokkur, börn fædd 2006-2008
Ingólfur Árni Benediktsson 6
Arna Dögg Kristinsdóttir 5
Ingólfur Bjarki Steinþórss. 4,5
Unglingaflokkur, börn fædd 2003-2005
Róbert Heiðar Thorarensen 5
Mótið fór vel fram í alla staði og var öllum hlutaeigendum til sóma. Brekkuskóla er þökkuð prýðisgóð aðstaða í sal skólans og Jóni Berg húsverði sérstaklega fyrir ómetanlega aðstoð. Mótið er liður í 100 ára afmælisdagskrá Skákfélags Akureyrar.
Myndina af keppendahópnum tók Sigurður Arnarson, en fjölmargar myndir hans til viðbótar er að finna á Facebook-síðu Skákfélagsins.













