
Stórmeistarinn, Jóhann Hjartarson (2530), endaði með 5½ vinning í 10 umferðum á alþjóðlega mótinu á Gíbraltar sem lauk í gær. Hinn „nýji Vlad“, Vladislav Aremiev stal sýninguni , vann mótið, og virðist vera nú best Vlad-inn í heiminum eftir að Vladimir Kramnik lagði peðin og alla hina mennina á hilluna, háaldraður í baráttunni um æðstu metorð í skákinni, þrátt fyrir að vera aðeins 43 ára.

Frammistaða Jóhanns samsvaraði 2534 skákstigum og hækkar hann um 1 stig fyrir hana.
252 skákmenn tefldu í efsta flokki mótsins. Þar af eru 95 stórmeistarar!
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14).
- Auglýsing -















