Eins og flestir lesendur heimasíðu SA munu vita, er Skákfélag Akureyrar að verða 100 ára nú í febrúar.  Eitt og annað er á dagskrá í tilefni þessara tímamóta og er þetta helst:

Átak í skákkennslu fyrir börn á Akureyri. Frá haustinu 2018 hafa nálaægt 500 skólabörn á Akureyri fengið reglulega kennslu í heimaskólum sínum, aðallega átta og níu ára gömul börn. Um leið stendur félagið fyrir öflugri skákkennslu í Skákheimilinu með tímum á mánudögum í allan vetur, þar sem 20-30 börn á aldrinum sex til tólf ára stunda nám. Rgelurlega hafa verið ghaldin barnamót í allan vetur og verður svo áfram til vors.

Barnamót á Skákdaginn 26. janúar.  Öðrum barnamótum til viðbótar var skákdagsins og aldarafmælisins minnst með móti í Brekkuskóla þann 26. janúar 2019.

Afmælishátíð 9-10. febrúar 2019. Efnt verður til skemmtikvölds fyrir félaga og velunnara kl. 20 laugaradgainn 9. febrúar. Daginn eftir verður svo boðið til veislu í kaffiteríu Íþróttahallarinnar kl. 15.00. Þar verður hinna merku tímamóta minnst með veglegri dagskrá.

Skákþing Norðlendinga, hið 85. í röðinni verður háð á Akureyri dagana 22-24. mars. Sérstaklega verpur vandað til mótsins í tilefni af aldarafmælinu.

100 ára afmælisskákmót verður haldið í Hofi dagana 25. maí til 1. júní. Um er að ræða níu umferða opið alþjóðlegt skákmót sem jafnframt verður Íslandsmót (Icelandic Open) þar sem teflt verður um þrjá Íslandsmeistaratitla. Heildarverðlaun í mótinu nema 12.000 evrum.

Íslandsmót öldunga 65 ára og eldri í Hofi dagana 26, maí til 1. júní. Tefldar verða sjö umferðir með kappskákfyrirkomulagi samhliða alþjóðlega mótinu sem að ofan greinir. +

Skákfélagið býður félaga sína, bæjarbúa og skákunnendur alla velkomna til þessarar afmælsidagskrár og vonast til að sem flestir sjái eitthvað við sitt hæfi meðal þeirra viðburða sem hér eru raktir.

Af heimasíðu SA

- Auglýsing -