Hjörvar Steinn Grétarsson hefur vinnings forskot fyrir lokaumferðina í A-flokknum á Skákhátíð MótX sem tefld verður á þriðjudagskvöldið. Að honum sækja þrír skákmenn, þeir Guðmundur Kjartansson, Jón L Árnason og Bragi Þofinnsson. Lykillinn að atlögu þremmenninganna er að Guðmundi takist að leggja Hjörvar með hvítu mönnunum.
Í B-flokknum er Páll Andrason efstur með vinningsforskot. Páll Andra og Gauti Páll Jónsson eigast við í lokaumferðinni og getur Gauti jafnað Andrason með sigri í þessum Pallaslag !
Loftið verður því spennuþrungið í stúkunni við Kópavogsvöll á þriðjudagskvöldið.
Jón L Árnason og Guðmundur Kjartansson
Gummi kom með framsækna nýjung í 14.leik og fékk í framhaldinu prýðilega stöðu. Reynsla stórmeistarans og útsjónarsemi sneri samt stöðunni smám saman honum í vil. Eftir 32 leiki var eftirfarandi staða á borðinu:
33.g4! – Hf2 (33. – Hg5? 34.Hxd7+! Hxd7 35.Bf6+ og vinnur) 34.g5 c3 35.Kg1?! (35.Bf6+ var mun sterkari) Hf5 og Gummi náði að halda jafntefli með sinni alkunnu seiglu.
Halldór Grétar Einarsson og Bragi Þorfinnsson
Hvítur notaði hugmynd frá Jon Ludwig Hammer í byrjuninni, en Bragi var vel undirbúinn og svaraði af krafti. Úr varð glæsileg og vel tefld skák hjá svörtum sem endaði með laglegri fléttu

18. – Hxf6! 19.gxf6 Bg4! 20.Bg5 Da5+ 21.Bd2 Db6 og hvítur gafst upp
Jóhann Hjartarson og Jón Viktor Gunnarsson
Eftir jafna byrjunarbaráttu þá lék Jón Viktor ónákvæmum leik sem Jóhann nýtti sér án tafar.
26. – Dc4?! 27.f5! (biskupsskákin á d5 í restina vinnur drottninguna og það gerir gæfumuninn) 27. – Bf7 28.Rg4 og stöðuyfirburðir hvíts eru talsverðir.
Eftir það var skákin í öruggum höndum Norðurlandameistarans og sigurinn var aldrei í hættu.
Björn Þorfinnsson og Bárður Örn Birkisson
Bárður tefldi skákina nokkuð vel og virtist ætla að vinna skákina þegar hér var komið við sögu:

33. – He8! (þessi leppun er frekar óþægileg) 34.Df3 Dxb2 35.Rc2 Hxe1+ 36.Rxe1 Dc1 og frípeðið á a-línunni og slæm staða riddarans gefur svarti alla möguleikana á vinningi.

41. – Kh8? jafntefli. Enn ein lokastaðan sem upp hefur komið að undanförnu þar sem ekki eru öll kurl komin til grafar. Af hverju ekki bara 41. – Kg8! 42.De8+ Bf8 og svartur sleppur frá þráskákinni?
Skák Baldurs Kristinssonar og Þrastar Þórhallssonar var frestað vegna veikinda þess síðarnefnda. Hún var tefld á fimmtudagskvöldið og lauk með jafntefli.
Jóhann Ingvason segist hafa tekið Stefán Bergsson í kennslustund. Magnús Pálmi og Hörður Aron fengu vinninga vegna veikinda andstæðinga sinna.
Í B-flokki vann Páll Andrason Birki Ísak Jóhannsson á efsta borði og er kominn með vinnings forskot í flokknum. Gauti Páll vann Loft Baldvinsson og Jóhanna Björg vann Jón Trausta í stuttri skák. Stephan Briem vann góðan endataflssigur á Eiríki Björnssyni. Gunnar Erik vann fyrrverandi aðstoðarmann forsætisráðherra.
Sjá önnur úrslit í A og B flokkum í yfirliti hér að neðan.
A-flokkur:
| Nafn | Stig | Úrslit | Nafn | Stig | ||
| GM | Arnason Jon L | 2432 | ½ – ½ | IM | Kjartansson Gudmundur | 2424 |
| FM | Einarsson Halldor Gretar | 2272 | 0 – 1 | GM | Thorfinnsson Bragi | 2438 |
| Kristinsson Baldur | 2217 | ½ – ½ | GM | Thorhallsson Throstur | 2425 | |
| GM | Hjartarson Johann | 2530 | 1 – 0 | IM | Gunnarsson Jon Viktor | 2462 |
| IM | Thorfinnsson Bjorn | 2414 | ½ – ½ | CM | Birkisson Bardur Orn | 2233 |
| FM | Ragnarsson Dagur | 2327 | 1 – 0 | WGM | Ptacnikova Lenka | 2187 |
| FM | Stefansson Vignir Vatnar | 2248 | 1 – 0 | Kristjansson Atli Freyr | 2174 | |
| Edvardsson Kristjan | 2190 | – – + | Ornolfsson Magnus P. | 2201 | ||
| Bergsson Stefan | 2172 | 0 – 1 | Ingvason Johann | 2175 | ||
| Sigurjonsson Siguringi | 2080 | – – + | Hauksson Hordur Aron | 1846 | ||
| Halldorsson Gudmundur | 2174 | 1 | bye | |||
| GM | Gretarsson Hjorvar Steinn | 2560 | ½ | Yfirseta | ||
| IM | Thorsteins Karl | 2421 | 0 | not paired | ||
| IM | Arngrimsson Dagur | 2367 | ½ | Yfirseta | ||
| FM | Sigfusson Sigurdur | 2241 | ½ | Yfirseta | ||
| Viglundsson Bjorgvin | 2092 | ½ | Yfirseta |
B-flokkur:
| Nafn | Stig | Úrslit | Nafn | Stig | ||
| Johannsson Birkir Isak | 1910 | 0 – 1 | Andrason Pall | 1833 | ||
| Baldvinsson Loftur | 1925 | 0 – 1 | Jonsson Gauti Pall | 2070 | ||
| Hardarson Jon Trausti | 2137 | 0 – 1 | Johannsdottir Johanna Bjorg | 1924 | ||
| Briem Stephan | 1987 | 1 – 0 | Bjornsson Eirikur K. | 1955 | ||
| Davidsson Oskar Vikingur | 1941 | ½ – ½ | Briem Benedikt | 1868 | ||
| Gudmundsson Gunnar Erik | 1693 | 1 – 0 | Arnarsson Hrannar | 2028 | ||
| Magnusdottir Veronika Steinunn | 1740 | 0 – 1 | Maggason Oskar | 1805 | ||
| Luu Robert | 1687 | 1 – 0 | Einarsson Oskar Long | 1743 | ||
| Sharifa Rayan | 1164 | – – + | Heidarsson Arnar | 1740 | ||
| Haile Batel Goitom | 1549 | ½ – ½ | Hakonarson Sverrir | 1521 | ||
| Davidsson Stefan Orri | 1530 | 1 – 0 | Gunnarsson Baltasar Mani Wedh | 1355 | ||
| Finnbogadottir Tinna Kristin | 1889 | + – – | Alexandersson Orn | 1512 | ||
| Sigfusson Ottar Orn Bergmann | 1275 | 1 | bye |
MótX 65+ meistarinn:
1.sæti: Björgvin Víglundsson 3 vinninga
MótX 50+ meistarinn:
1.sæti: Jón L Árnason 4,5 vinninga
2.sæti: Jóhann Hjartarson 3,5 vinninga
3.sæti: Þröstur Þórhallsson 3 vinninga og frestaða skák
Skákmeistari Breiðabliks:
1.-2. sæti: Magnús Pálmi Örnólfsson og Vignir Vatnar Stefánsson 3,5 vinninga
3.-5.sæti: Halldór Grétar Einarsson, Jóhann Ingvason og Dagur Arngrímsson 3 vinninga
Unglingameistari Breiðabliks:
- -3. sæti: Birkir Ísak Jóhannsson, Stephan Briem og Gunnar Erik Guðmundsson 4 vinninga
Teflt er á þriðjudagskvöldum og hefst taflmennska kl. 19:30. Skákstjóri er Vigfús Vigfússon.
Heitt er á könnunni og bruðerí af bestu sort og áhugasamir hvattir til að kíkja við.
















