Hörðuvallaskóli hefur titil að verja á Íslandsmóti barnaskólasveita.

Skáksveit Hörðuvallaskóla sigraði á Íslandsmóti barnaskólasveita, 4.-7. bekk, sem fram fór 16. mars sl. í Rimaskóla. Afar góð þátttaka var á mótinu en 37 sveitir tóku þátt.

Sveit Íslandsmeistara Hörðuvallaskóla skipuðu:

  1. Benedikt Briem
  2. Grétar Jóhann Jóhannsson
  3. Guðrún Fanney Briem
  4. Snorri Sveinn Lund
  5. 1v. Guðmundur Róbertsson
  6. 2v. Hilmar Óli Viggósson

Liðsstjóri var Gunnar Finnsson.

Silfursveit Háteigsskóla ásamt liðsstjóra. Mynd: KÖE

Háteigsskóli varð í öðru sæti. Þá sveit skipuðu Adam Omarsson, Soffía Berndsen, Josef Omarsson og Ásthildur Helgadóttir.

Salaskóli varð í þriðja sæti. Þá sveit skipuðu: Gunnar Erik Guðmundsson, Katrín María Jónsdóttir, Daníel Davíðsson og Ottó Andrés Jónsson.

Bronsveit Salaskóla ásamt liðsstjóra.

Fjórar landsbyggðarsveitir tóku þátt sem er það mesta í all nokkur ár. Fagnaðarefni. Flúðaskóli fékk verðlaun fyrir bestan árangur slíkra sveita.

Flúðaskóli stóð sig best landsbyggðarsveitanna. Mynd: KÖE

Rimaskóli fékk verðlaun fyrir bestan árangur b-liða, Háteigsskóli vann keppni c-liða, Hörðuvallaskóli d- og e-liða.

Rimaskóli stóð sig best b-sveita. Mynd: KÖE
Háteigsskóli stóð sig best c-sveita. Mynd: KÖE

 

Hörðuvallaskóli stóð sig best d-sveita. Mynd: KÖE

 

Hörðuvallaskóli stóð sig best e-liða. Mynd: KÖE

 

 

 

 

Borðaverðlaun hlutu:

Borðaverðlaun hlutu: Ásthildur Helgaóttir (Háteigsskóla), Guðrún Fanney Briem (Hörðuvallaskóla), Grétar Jóhann Jóhannsson (Hörðuvallaskóla) og Benedikt Þórisson (Austurbæjarskóla). Mynd: KÖE

Skákstjórar voru Ingibjörg Edda Birgisdóttir, Kristján Örn Elíasson og Stefán Bergsson.

Íslandsmót grunnskólasveita fer fram laugardaginn 30. mars í Landakotsskóla. Kynning um mótið væntanleg.

 

- Auglýsing -