Æsir tefla. Mynd: ESE

Ef að líkum lætur (eins og grafari einn hafði að orðtæki) verður stuð í Stangarhyl þriðjudaginn 19. mars,  þegar keppt verður um meistaratitil klúbbsins. Meistari síðasta ár varÐ Sæbjörn G. Larsen eftir harða keppni við eldhressa eldri meistara. Ögmundur Kristinsson hefur annars einokað titilinn í nokkur ár nema 2016 þegar Björgvin Víglundsson sigraði, án þess að koma hvorki sjálfum sér né öðrum á óvart.  Árið 2012 og árin þar á undan skiptust þeir Jóhann Örn Sigurjónsson og Björn Þorsteinsson heitinn á um að hampa meistaratitlinum.

Þátttaka í þriðjudagsmótum eldri borgara í Ásgarði, Stangarhyl, hefur verið afar góð þennan veturinn, iðulega á fjórða tug aldinna skákgarpa mættir til tafls sér til ánægju og yndisauka, en þó eitilharðir í vígahug og grimmir inn við beinið.  Sumir hverjir halda svo áfram að skáka hverjir á öðrum á miðvikudögum í Riddaranum og svo á fimmtudögum hjá Korpúlfum.

Sigursælastir undanfarið hafa verið þeir Bragi Halldórsson, Björgvin Víglundsson, Guðfinnur Kjartansson, Gunnar Örn Haraldsson, Júlíus Friðjónsson auk  Sæbjörns sem áður var nefndur.

Þess má vænta að nú mætist stálinn stinn eins og fyrri daginn.  Mótið hefst kl. 13 og lýkur um kl. 16.45.  Tefldar verða 10 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á skákina.  Kaffi og kleinur eða annað gott meðlæti í taflhléi eftir 6. umferð.

Hér má sá úrslit meistaramótsins í fyrra:

Myndskreyting: ESE
- Auglýsing -