Íslenska 50+ á Ródos.

Ungmennaliðið (50+) vann sannfærandi, 3-1, sigur á rússneska kvennalandsliðinu í áttundu og næstsíðustu umferð HM öldungsveita sem fram fór í dag. Sveitin er í 3. sæti fyrir lokaumferðina. Reynsluliðið hlaut skell á móti Englendingum ½-3½. Lokaumferðin hefst kl. 6:30 í fyrramálið. Tilvalið að vakna snemma!

Babúskur lagðar

Helgi Ólafsson (2506) og Jóhann Hjartarson (2520) unnu sigra á 1. og 2. borði. Þriðji sigur Jóhanns í röð! Margeir Pétursson (2492) og Jón L. Árnason (2423) gerðu jafntefli.

Ísland er í þriðja sæti með 12 stig. Bandaríkjamenn eru efstir með 15 stig og hafa aðra höndina á bikarnum. Ítalir eru aðrir með 13 stig.

Strákarnir okkar mæta sterkri sveit Ísraela á morgun. Sigur gæti mögulega þýtt silfur.

Þröstur Þórhallsson kemur inn á morgun fyrir Jón L. Árnason.

Annar skellur

Reynsluliðið hefur hlotið tvo skelli. Hvað gera Áskell og félagar á morgun?

Reynsluliðið (+65) steinlá aftur í dag. Að þessu sinni gegn Englendingum. Björgvin Víglundsson (2170) gerði gott jafntefli geng enska alþjóðlega meistaranum Nigel Povah (2319) en aðrar skákir töpuðust.

Reynsluboltarnir tefla við danska klúbbinn Norresundby á morgun.

- Auglýsing -