Í gær hófst Xtracon-mótið (áður Politiken Cup) á Helsingjaeyri í Danmörku. Alls taka um 368 skákmenn þátt frá 25 löndum og þar af eru 25 stórmeistarar.
Þrír íslenskir skákmenn taka þátt. Það eru stórmeistarinn Jóhann Hjartarson (2513), alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2470) og FIDE-meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2270).
Jóhann og Hilmir Freyr unnu í gær en Guðmundur Kjartansson gerði jafntefli. Allir tefldu þeir við mun stigalægri andstæðinga.
Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri hefst kl. 8:15 og sú síðari kl. 15:15. Allir tefla þeir við umtalsvert stigalægri andstæðinga í fyrri skák dagsins.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (Á ýmsum tímum en flestar kl. 11:15)
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson tapaði fyrir hollenska stórmeistaranum Roeland Pruuhssers (2562) átundu og næstsíðustu umferð alþjóðlega mótsins í Leiden í Hollandi í gær. Hannes hefur 3 vinninga. Í lokaumferðinni sem hefst kl. 9 í dag við indverska alþjóðlega meistarann Das Arrghyadip (2439).
Hannes teflir í 10 manna lokuðum flokki. Meðalstigin eru 2495 skákstig. Hannes er þriðji stigahæstur keppenda.
- Heimasíða mótsins
- SwissMaster (áþekkt Chess-Results)
- Beinar útsendingar (yfirleitt 11 eða 15)
FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2293) hóf þátttöku á áfangamótinu Glorney Gilbert Norm Event á Írlandi í gær. Um er ræða túrbó-mót þar sem tefldar eru níu umferðir á fimm dögum. Tíu keppendar. Engar upplýsingar eru komnar á Chess-Results en samkvæmt heimildum ritstjóra gerði Vignir jafntefl við stigahæsta keppenda mótsins, alþjóðlega meistarann Joseph McPhillips (2412) í fyrstu umferð.
Meðalstig flokksins eru 2170 skákstig. Vignir er fjórði stigahæsti keppandi mótsins
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 9 og 14) – ekki kominn með tengil.
















