Vignir Vatnar við upphaf skákarinnar á móti Tom O´Goman í gær. Spennandi skák sem lauk með sigri VVS-vélarinnar. Mynd: GB

FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2293) átti góðan gærdag á Glorney-Gilpert áfangamótinu í Hrafnadal á Írlandi. Vignir vann írska FIDE-meistaranum Tom O´Gorman í fyrri skák dagsins og gerði jafntefli við enska alþjóðlega meistarann Gavin Wall (2311) í þeirri síðari. Vignir hefur 5½ vinning eftir 7 skákir og dugar 1½ í þeim tveim skákum sem tefldar eru í dag til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.

Í fyrri skák dagins, sem nú er í gangi, teflir hann við Írann Darragh Moran (1880) og í þeirri síðari við enska FIDE-meistarann Thomas Wiley (2162).

Yfirlit yfir úrslit mótsins má finna hér.

Um er að ræða „túrbó-mót“. Níu umferðir tefldar á 5 dögum.

Meðalstig flokksins eru 2170 skákstig. Vignir er fjórði stigahæsti keppandi mótsins

Xtracon-mótið

Jóhann Hjartarsson (2513) og Hilmir Freyr Heimisson (2279) unnu báðir sínar skákir í fimmtu umferð Xtracon-mótsins á Helsingjaeyri sem fram fór í gær. Guðmundur Kjartansson (2470) tapaði.

Jóhann hefur 4 vinninga, Hilmir hefur hefur 3½ vinning og Guðmundur hefur 3 vinninga. Í sjöttu umferð, sem fram fer í dag tefla þeir allir við stigalægri andstæðinga.

Umferð dagsins byrjar kl. 11:15.

Czech Open

Lenka Ptácníková (2074) tapaði í gær og hefur 1 vinning eftir 5 umferðir.

- Auglýsing -