FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2293) náði sér í sinn fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli með frábærum árangri á Glorney Gilbert-áfangamótinu sem lauk í gera í Hrafnadal á Írlandi.
Vignir hlaut 7 vinninga af 9 mögulegum og varð einn efstur. Í gær vann hann hann Írann Darragh Moran (1880) og gerði svo jafntefli við enska FIDE-meistarann Tom Wiley (2162).
Glæsilegur árangur hjá pilti sem hækkar um 18 skákstig fyrir frammistöðu sína.
Áfangamótið var hluti af skákhátíð í Hrafnadal þar sem unglingalandskeppni á 20 borðum á milli Írlands, England, Wales, Skotlands, Holllands og Frakklands var aðalatriðið.
Meðalstig flokksins voru 2170 skákstig. Vignir var fjórði í stigaröð keppenda
- Auglýsing -














