Jóhann vann sína skák í gær á móti Frank Buchenau. Mynd: Heimasíða mótsins.

Það gekk vel hjá íslensku keppendum í sjöttu umferð á Xtracon-mótinu á Helsingjaeyri í gær. Allir unnu þeir – reyndar stigalægri andstæðinga.

Jóhann Hjartarsson (2513) hefur 5 vinninga og er aðeins með með hálfan vinning minna en efstu menn. Hilmir Freyr Heimisson (2279) hefur 4½ vinning en Guðmundur Kjartansson (2470) er með 4 vinninga.

Jóhann mætir í dag norska stsórmeistaranum Aryan Tari (2620), Hilmir teflir við norska alþjóðlega meistarann Kristian Stuvik Holm (2469) og Gummi mætir sænska skákmeistaranum Jorgen Eriksson (2211).

Umferð dagsins byrjar kl. 11:15.

Czech Open

Lenka Ptácníková (2074) vann í gær og hefur 2 vinninga eftir 6 umferðir.

- Auglýsing -