Vignir Vatnar Stefánsson, sem er í þessum rituðu orðum í skákvíking á Írlandi, sigraði með sex og hálfum vinning af sjö mögulegum á skákmóti sem fram fór á kaffihúsinu Stofunni að Vesturgötu 3, miðvikudaginn 17. júlí síðastliðinn.
Vignir gerði aðeins jafntefli við Daða Ómarsson en vann aðra andstæðinga sína. Í öðru sæti varð Gauti Páll Jónsson, sem einnig hefur verið iðinn við kolann í sumar og í þriðja sæti varð Stefán Bergsson. Stefán hafði nýverið teflt á skákmóti í Slóvakíu, hvar hann stóð sig með prýði. Hlaut Vignir gjafabréf í Kringluna en Gauti og Stefán hlutu í verðlaun gjafabréf á Stofuna. Styrkaraðilar mótsins voru Hrókurinn og Stofan. Gauti Páll og Stefán voru með fimm og hálfan vinning en næstir urðu þeir Arnljótur Sigurðsson og Birkir Karl Sigurðsson sem hlutu fimm vinninga hvor.
Valinn maður sat í hverju sæti á þessu glæsilega og fjölmenna móti en 30 skákmenn tóku þátt sem gerir mótið fjölmennasta Stofumótið hingað til. Mótin hafa vaxið fiskur um hrygg og glætt skáksenu miðborgarinnar nýju lífi. Stefnt er að halda mótin mánaðarlega, um miðjan hvern mánuð og verður mót ágústmánaðar enn stærra og veglegra en áður. Þó má geta þess að ekki komast fleiri en fjörutíu skákmenn að í Stofukjallaranum en fram að þessu hefur ekki reynt á það. Skákstjórn og yfirumsjón með mótinu hafði Elvar Örn Hjaltason og á hann þökk skylda fyrir þetta framtak sitt.
Lokastaðan á Chess-Results.
















