Dagur Ragnarsson að tafli.

Fjöldi íslenskra skákmanna situr þessa dagana að tafli erlendis. Hæst ber EM ungmenna sem hefst í dag í Bratislava í Slóvakíu. Þar tefla 14 íslensk ungmenni. Pörun fyrstu umferðar liggur nú fyrir og má finna á Chess-Results. Fréttaritari Skák.is í Slóvakíu, Ingvar Þór Jóhannesson, mun gera því móti góð skil á meðan því stendur.

Dagur Ragnarsson (2391) tekur þátt í lokuðu túrbó-móti (9 umferðir á 5 dögum) í Montreal í Kanada dagana 31. júlí – 4. ágúst. Dagur hefur 1½ vinning eftir 3 umferðir. Tvær umferðir fara fram í dag.

Lenka Ptácníková (2089) og Sigurður Ingason (1796) taka þátt í opnum móti í Prag dagana 2. -9. ágúst. Mótið hefst í dag.

Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1682) tekur þátt í alþjóðlegu sjö umferða móti í Berlín dagana 1.-5. ágúst.

Hún er ekki komin á blað eftir tvær umferðir.

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -