Hrókurinn verður með opið hús og Grænlandsmót í skák á Menningarnótt, í tilefni af því að félagið hefur á síðustu þremur vikum haldið hátíðir vítt og breitt um Grænland. Mótið er haldið í Pakkhúsi Hróksins, Geirsgötu 11 við Reykjavíkurhöfn, og hefst klukkan 14. Tefldar verða sex umferðir og er umhugsunartími 3 mínútur með 2ja sekúndna viðbótartíma.
Samhliða mótinu verður ljósmyndasýning frá nýafstöðnum hátíðum Hróksins í Kullorsuaq, Upernavik, Nuuk og Tasiilaq. Alls tóku yfir 600 börn þátt í hátíðum Hróksins, auk fjölmargra fullorðinna.

Verðlaunagripir á Grænlandsmótinu eru ekki hefðbundnir verðlaunapeningar, heldur hannunnar gersemar frá Grænlandi. Fjöldi keppenda er takmarkaður við 22 og því eru skákáhugamenn á öllum aldri hvattir til að skrá sig sem fyrst hjá Herði Jónassyni skákstjóra í hordurj@simnet.is eða á Facebook-síðu viðburðarins: https://www.facebook.com/events/418958478718404/

Go back

Your message has been sent

Warning
Warning
Warning
Warning

Warning.

 

- Auglýsing -