Helgi Áss að tafli í Sarpsburg í Noregi í sumar.

Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2412) hefur hlotið 3 vinninga að loknum fjórum umferðum á alþjóðlegu móti á grísku eyjunni Krít.

Fórnarlömb Helga hafa hingað til ekki verið ýkja stigahá eða á bilinu 1350-1810 skákstig. Hann tapaði fyrir stigahæsta keppenda mótsins, ítalska stórmeistaranum, Alberto David (2534).

Í fimmtu umferð, sem hefst kl. 13, teflir Helgi við heimamanninn Alexandros Kotsinis (2007).

 

- Auglýsing -