Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2538) og alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson (2401) sitja þessa dagana að tafli í efsta efsta flokki á alþjóðlegu móti í Túnis. Hannes Hlífar hefur 2 vinninga að loknum þrem umferðum en Davíð hefur 1½ vinning.
Mótinu er framhaldið í dag með fjórðu umferð kl. 15 í dag.
Sextán skákmenn tefla í flokknum. Hannes er stigahæstur keppenda en Davíð er fimmti
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 15 og 8)
Heraklion International
Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2410) teflir á alþjóðlegu móti á Krít. Mótið hófst í gær og vann Helgi sína skák sem og fyrri skák dagsins í dag. Sú síðari hefst kl. 14:30.
Önnur og þriðja umferð fer fram í dag. 91 skákmaður tekur þátt og er Helgi sjötti í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 14)
- Auglýsing -
















