Fjórir keppendur eru efstir og jafnir á hinu sterka opna móti sem nú er í gangi á Mön. Það eru Kínverjinn Wang Hao (2726), Bandaríkjamaðurinn Fabiano Caruana (2812), Englendingurinn Luke McShane (2682) og Íraninn Parham Maghsoodloo (2664). Þeir hafa 3½ vinning.
Sextán skákmenn hafa 3 vinninga. Heimsmeistarinn Magnús Carslen (2876) mátti sig við jafntefli við hvít-rússneska stórmeistarann Vladislav Kovalev (2661) og mátti teljast afar heppinn að sleppa frá tapi. Magnús hefur 2½ vinning og er í 21.-59. sæti
Fimmta umferð fer fram í dag. Þá mætast meðal annars McShane-Caruana og Wang Hao-Maghsoodloo. Carlsen teflir við Indverjann Surya Shekhar Ganguly.
Sjá nánar á Chess.com.
Sigurvegari mótsins (eða sá sem sem er efstur á eftir Carlsen og/Caruana) fær keppnisrétt á næsta áskorendamóti sem fram fer í Rússlandi í vor. Mótið er hrikalega sterkt. Af 154 keppendum eru 132 stórmeistarar.
















