Wang Hao (2726) vann sigur á Manarmótinu sem lauk í fyrradaga. Hann vann David Howell (2694) í lokaumferðinni. Kínverjkinn viðkunnanlega kom jafn í mark og Fabiano Caruana (2812) en hafði sigur á mótinu á oddastigum. Wang Hao fær þar með keppnisrétt á áskorendamótinu sem fram fer í Rússlandi í vor.
Magnús Carlsen (2876) varð í 3.-8. sæti. Því sjötta reyndar á oddastigum. Heimsmeistarinn hefur nú teflt 101 skák í röð án taps.
Frammistaða Magnúsar samsvaraði „aðeins“ 2825 skákstigum og lækkar hann um stig fyrir hana!
Nánar á Chess.com.
- Auglýsing -

















