Það ætlar að ganga brösulega að sækja fyrsta sigurinn á Evrópumóti landsliða. Í fimmtu umferðinni mætti íslenska liðið sveit Eista sem er svipuð að styrkleika og sú íslenska en þó ögn reyndari og eldri. Sami andstæðingur var lagður að velli á Ólympíuskákmótinu í Baku en nú voru heilladísirnar engan veginn með okkar mönnum.
Hannes Hlífar hvíldi og því kom það í hlut Guðmundar Kjartanssonar að mæta hinum sterka Kaido Kulaots á fyrsta borði. Guðmundur var mjög vel undirbúinn að tefla Petroff en Kaido grunaði það og lék 2.Bc4 til að koma í veg fyrir það. Guðmundur var engu að síður með hugmynd í þeirri byrjun og miðtaflið var mjög athyglisvert og Guðmundur var seint í skákinni farinn að blása til sóknar og Kaido í tímahraki. Sá eistneski varðist öllum tilburðum okkar manns og vann eftir mikla baráttu.
Bragi fékk nokkuð vænlegt tafl í sinni skák og svo vænlegt raunar að hann gat unnið mann á einum stað. Því miður yfirsást Braga sá leikur algjörlega og lék slökum drottningarleik Dh5? í stað þess að skipta upp á drottningum og vinna mann. Skiljanleg yfirsjón en grátleg þar sem spennan í stöðunni var mikil og mannvinningurinn ætti að sjást á þessum styrkleika. Sókn Braga fjaraði þess í stað út og einföld tímabundin skiptamunsfórn eyðilagði hvítu stöðuna algjörlega sem var í molum og ekkert hægt að gera í málunum.
Helgi hélt sig við Pirc/Modern kerfin sín en lék af sér í þessari skák og stóð virkilega höllum fæti. Helgi er hinsvegar mikill baráttumaður og hann hélt áfram að djöflast og náði að lokum að vinna sig inn í skákina og ná jafntefli með mikilli seiglu. Því miður reyndist þetta eini hálfi vinningurinn okkar í viðureigninni.
Dagur svipað og Bragi átti hartnær rakinn vinning seint í skákinni eftir fína taflmennsku. E.t.v. tefldi Dagur of mikið upp á tíma andstæðingsins en staða hans var enn mjög góð eftir gerðan leik Df6 en þar gat hann leikið Dg3! þar sem biskupsleikurinn Bc3 í næsta leik gerir einfaldlega út um taflið.
Með smá heilladísum hefðum við því unnið þessa viðureign og fyrirsagnirnar væru aðrar en þess í stað fáum við „Blóðbað í Batumi“ fyrirsagnir.

Raunir f7 peðsins í skák hins spænska Candelario gegn Christian Bauer vöktu nokkra athygli.

Peðið komst á óvenjulegan hátt á f7 eftir að hafa drepið peð á f6. Svartur lék sig peðið litlu varða og lét það eiga sig í næstu leikjum.

Hér er nánast orðið gáta hvernig peðið komst á f7 reitinn!
Peðið á f7 var í raun eins og geimvera sent í einhvern leiðangur og náðist þessi mynd af peðinu að athuga hvort félagar hans væru ekki að koma að sækja hann!

Að lokum heilum FIMMTÁN (!!) leikjum síðar drap svartur loks peðið á f7, en þá líklegast gegn betri vilja!

Í dag er frídagur og fríið kærkomið fyrir okkar menn en þó engan bilbug á okkar mönnum að finna sem vilja klára mótið vel og gera eins vel úr stöðunni og hægt er.
Í 6. umferðinni mætum við liði Skota sem er stigalægsta lið mótsins. Skotar senda í raun ekki lið og eru langt frá sínu sterkasta liði, þeir sem eru í liðinu eru allir á eigin vegum. Allt annað en sigur væri í raun stórslys og mun undirritaður íhuga kaup á árabát strax eftir umferð ef sigri verður ekki landað á morgun!
Áfram Ísland!
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 11:15)















