Skák er víst skemmtileg!

Úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í Fischer-slembiskák hófst í gær í Bærum í Noregi. Fjórir keppendur taka þátt. Magnus Carlsen, Fabiano Caruana, Ian Nepomniachtchi og Wesley So. Teflt er eftir útsláttarfyrirkomulagi. Carlsen mætir Caruana en Nepo mætir Wesley So.

Kerfið er nokkuð flókið. Alls eru tefldar 12 skákir í hverjum einvíg. Fjórar „hægar“ atskákir, (45/15) svo fjórar „hraðar“ atskákir (15/2) og að lokum hraðskák(3/2). Hægu skákirnar, gilda 3 vinningar hver, þær hraðari gilda tvo vinninga en hraðskákirnar 1 vinning. Alls því 24 vinningar í pottinum. Alls tekur hvert einvígi 3 daga.

Veislan hófst í gær með tveim hægum atskákum. Báðum skákum Nepo og So lauk með jafntefli en Caruna vann fyrri skákina gegn Carlsen en tapaði þeirri seinni – eftir frábæra endataflstækni heimsmeistarans.

Taflmennskan hefst kl. 16. Að sjálfsögðu allt beint á NRK fyrir þá sem hafa aðgang en einnig er hægt að fylgjast með beint á heimsaíðu mótsins.

 

 

- Auglýsing -