Nýársskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið mánudaginn 6 janúar 2020, kl: 13, í Vin að Hverfisgötu 47.
Tefldar verða 6 umferðir með 7 mínútur á skák.
Skákdómari verður Róbert Lagerman, en skipuleggjari er Hörður Jónasson.
Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.
Í hléi verður boðið upp á kaffi og vöfflur.
Góð verðlaun verða í boði.
Þið getið skráð ykkur á mótið á gula kassanum hér á skak.is
Einnig getið þið skráð ykkur á staðnum.
Til að sjá hverjir hafa skráð sig:
https://docs.google.com/spreadsheets/d/e/2PACX-1vSnC33yrYXk1niPLuxdd2_8OAyFNhsv-5GUmb3gYr-6tQnv_GLkgiAr6p3rq5Q0aD86TROCm1_sE9lf/pubhtml
Allir velkomnir!!
- Auglýsing -

















