Lokadagurinn á NM ungmenna hefjast núna kl. 9. Tvær síðustu umferðirnar fara fram í dag. Hilmir Freyr Heimisson, er efstur í a-flokki (u20). Vignir Vatnar Stefánsson er í 1.-3. sæti í b-flokki (u17). Ingvar Wu Skarphéðinsson, sem teflir í d-flokki (u13) er í 2.-3. sæti. Ísendingaslagir eru a- og b-flokki í fimmtu og næstíðustu umferðinni.
Umferðir dagsins eru kl. 9 og 15 og hægt að fylgjast með öllum skákunum beint.
A-flokkur (u20)
1. FM Hilmir Freyr Heimisson (2250) 3½ v.
3.-5. CM Bárður Örn Birkisson (2186) 2½ v.
B-flokkur (u17)
1.-3. FM Vignir Vatnar Stefánsson (2323) 3 v.
4.-5. Stephan Briem (2197) 2½ v.
C-flokkur (u15)
7.-10. Benedikt Briem (1841) 1½ v.
11. Benedikt Þórisson (1653) 1 v.
D-flokkur (u13)
2.-3. Ingvar Wu Skarphéðinsson (1484) 3 v.
4.-6. Gunnar Erik Guðmundsson (1770) 2½ v.
E-flokkur (u11)
7.-8. Guðrún Fanney Briem (1209) 2 v.
10.-11. Einar Dagur Brynjarsson (1121) 1 v.
Fararstjórar eru Helgi Ólafsson og Kristófer Gautason. Skák.is mun fylgjast með gangi mála um helgina.















