Sigga, Liss,, Tinna, Hrund, Lenka, Jóhanna og Gulla á síðustu æfingunni fyrir ferðina til Prag. Auk þeirra teflir Sigurlaug á Íslandsmótinu.

Eitt sterkasta Íslandsmót kvenna í sögunni hefst í kvöld kl. 18. Teflt er í Sveinatungu við Garðatorg í Garðabæ.  Af tólf stigahæstu skákkonum landsins taka átta þátt. Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Garðabæjar setur mótið og leikur fyrsta leikinn.

Lenka Ptácníková (2099) hefur titilvörnina gegn Tinnu Kristínu Finnbogadóttur (1838).

Pörun fyrstu umferðarKeppendalistinn:

  1. WGM Lenka Ptácníková (2099)
  2. WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir (2021)
  3. Jóhanna Björg Jóhanndóttir (1933)
  4. WIM Lisseth Acevedo Mendez (1849)
  5. Tinna Kristín Finnbogadóttir (1838)
  6. Hrund Hauksdóttir (1804)
  7. Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1690)
  8. Sigríður Björg Helgadóttir (1682)

Mótið á Chess-Results.

Tengill á beinar útsendingar. 

Auk þess er tefldur áskorendaflokkur kvenna þar sem sex ungar og bráðefnilegar stúlkur taka þátt. Þetta er í fyrsta skipti í meira en áratug þar sem áskorendaflokkur kvenna fer fram – sem vonandi gefur merki um verulega bæta stöðu í kvennaskák hérlendis. Því móti lýkur á sunnudaginn.

Áskorendaflokkur kvenna á Chess-Results. 

Mótið er haldið semeiginlega af Skáksambandinu og Taflfélagi Garðabæjar sem fagnar 40 ára afmæli í ár.

Nánar á heimasíðu mótsins.

- Auglýsing -