Margeir Pétursson og Þröstur Þórhallsson taka þátt í landsliðsflokki Skákþings Íslands sem hefst 22. ágúst nk.

Íslenska liðið á HM öldungasveita tapaði með minnsta mun gegn sterkri tékkneskri sveit í 4. umferð HM öldungasveita (50+) sem fram fór í gær. Margeir Pétursson (2466), Þröstur Þórhallsson (2424) og Björgvin Jónsson (2324) gerðu jafntefli en Guðmundur Gíslason (2322) tapaði.

Íslenska sveitin hefur 6 stig og er í 10. sæti af 55 sveitum.

Íslensku ungmennin mæta í dag sveit Austurríkis. Þá sveit skipa þrír FIDE-meistarar. Margeir hvílir í dag.

Viðureignir Íslands í gær og í dag

 

- Auglýsing -