Íslensku strákarnir unnu góðan sigur á sveit Slóvakíu í sjöttu umferð HM öldungasveita sem fram fór í gær. Guðmundur Gíslason (2322) vann sína skák á fjórða borði en Margeir Pétursson (2466), Þröstur Þórhallsson (2424) og Björgvin Jónsson (2324) gerðu jafntefli. Frábær úrslit!
Íslenska sveitin er í þriðja sæti með 10 stig af 12 mögulegum. Ísland mætir heimsmeisturum Bandaríkjanna í sjöundu umferð sem fram fer í dag. Alls eru tefldar níu umferðir. Bandaríska liðið er það langsterkasta en það skipa fimm stórmeistarar. Kanarnir eru efstir með 11 stig en auk Íslendinga hafa Tékkar 10 stig.
Að minnsta kosti sex lið hafa hætt á mótinu. Þar á meðal ákvað hitt bandaríska liðið (USA Too) að hætta þátttöku á mótinu – væntanlega vegna ferðabannsins sem Trump hefur sett á Evrópu. Koma sér heim áður en skrúfað verður fyrir flug til Bandaríkjanna frá Evrópu.
Röð efstu liða
Viðureignir Íslands í gær og í dag
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)

















