
HM öldungasveita endaði í gær – tveimur umferðum fyrir áætluð mótslok. Það var tilkynnt í upphafi umferðarinnar að umferðin yrði sú síðasta og staðan að henni lokinni myndi gilda. Enda er samkomubann í Tékklandi og mótið komið í töluverða upplausn.
Íslenska liðið mætti sveit heimsmeistara Bandaríkjanna í sjöundu umferð. Við tilkynningu mótshaldara minnkaði stemmingin mikið. A.m.k. sex lið höfðu hætt fyrir umferðina og hitt bandaríska liðið (USA TOO) hafði eftir ákvörðun Trumps um ferðabann frá Evrópu ákveðið að hætta einnig þrátt fyrir að búið væri að para í umferðina. Sú ákvörðun þeirra var vond fyrir íslenska liðið – vægast sagt.
Eftir að ákvörðunin var tilkynnt um umferðin væri sú síðasta fjaraði út stemmingin á skákstað sem var sjálfsagt orðin býsna steikt fyrir.
Íslenska liðið, sem tefldi á fyrsta borði, og það bandaríska sömdu um jafntefli á öllum borðum í örfáum leikjum og það sama gerðist á öðru borði í viðureign Rússa og Tékka. Í þriðja borði vann þýski Lasker-klúbburinn 4-0 sigur á hinni bandarísku sveitinni þar sem hún mætti ekki til leiks eins og áður hefur komið fram.
Úrslitin gegn Bandaríkjunum
Þar með náðu Lasker-menn íslensku og tékknesku sveitinni stigum sem fyrir umferðina höfðu verið í 2.-3. sæti. Og ekki nóg með það – sveitin fór upp fyrir þær að vinningum og tók silfrið. Tékkarnir fengu bronsið en Íslendingar sátu eftir án verðlaunapeninga. Takk Trump!
Lokastaða efstu liða

Margeir, Þröstur og Björgvin stóðu sig vel. Allir taplausir. Þröstur hlaut 5 vinninga í 7 skákum. Margeir og Björgvin hlutu 4½ í 6 skákum. Gummi byrjaði illa en hlaut 2½ vinning í síðustu þremur skákunum. Endaði með 3 vinninga í 6 skákum. Ágúst Sindri hlaut 1½ vinning í 3 skákum.
Árangur íslensku liðsmannanna

Staðan
Meira eða minna allt skákmótahald í heiminum á næstunni hefur verið frestað. Danir settu sitt skáklíf í hlé til 15. apríl nk. Finnar felldu niður lokaumferðirnar í finnsku deildakeppninni. Þjóðverjar frestuðu Bundes-ligunni sem fram átti að fara fram um helgina. Flestum stærri alþjóðlegum mótum hefur verið frestað eða aflýst. Ágætis samantekt má finna á Chess.com. Áskorendamótið í skák er hins vegar enn á dagskrá og hefst 17. mars.
Íslenskt skáklíf hefur líka orðið fyrir barðinu á veirunni og flestum viðburðum á næstunni verið frestað. En skák getur beðið! Og svo er hægt að tefla á netinu!
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)













