
Íslenska sveitin vann stórsigur á sveit Austurríkis í fimmtu umferð í flokki 50 ára og eldri á HM öldungasveita sem fram fór í gær. Þröstur Þórhallsson (2466), Björgvin Jónsson (2324) og Guðmundur S. Gíslason (2322) unnu sínar skákir en Ágúst Sindri Karlsson (2268) gerði jafntefli. Sveitin hefur 8 stig af 10 mögulegum og er í þriðja sæti Í dag tefla strákarnir okkar við afar sterka sveit Slóvakíu.
Í gær var samkomubann sett í Tékklandi um viðburði með meira en 100 þátttakendur. Á tímabili var það mat margra að mótinu yrði aflýst.
From Tuesday evening at 18.00, the Czech Republic Ministry of Health is banning all sporting and cultural events with more than 100 participants. The World Senior Team Championship in Prague, with around 400 players, is half finished and will probably have to be abandoned.
— Ian Rogers (@GMIanRogers) March 10, 2020
Staðan var leyst þannig að mótinu var skipt upp í sex svæði sem teflt var á með leyfi heilbrigðisyfirvalda í Prag.
Einhver lið hafa hætt þátttöku á mótinu en þó alls ekki mörg.
Sjötta umferð af níu fer fram í dag. Íslensku ungmennin mæta í dag sterkri sveit Slóvakíu. Þá sveit skip tvær stórmeistarar, einn alþjóðlegur meistari og einn FIDE-meistari.
Viðureignir Íslands í gær og í dag

- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
















