Magnús Carlsen (2881) vann sigur á eigin boðsmóti sem lauk í gær á Chess24-skákþjóninum. Magnús vann sigur á Hikaru Nakamura (2829) í spennandi úrslitaeinvígi, 2½-1½. Carlsen vann fyrstu og þriðju skák en Nakamura þá aðra. Heimsmeistarinn hélt svo jafntefli í lokaskákinni og hlaut að launum $70.000 eða ríflega 10 milljónir króna.

Mótshaldið gekk afar vel og er óhætt að segja að það hafi létt geð skákáhugamanna á þessum sérstökum tímum.
Lokastaðan
Næsta verkefni sterkustu skákmanna heims er þjóðakeppni FIDE á Chess.com sem hefst á morgun. Þar tefla nánast allir sterkustu skákmenn heims að heimsmeistaranum undanskildum. Garry Kasparov verður liðsstjóri heimsliðsins. Nánar um það mót á Chess.com.
- Auglýsing -















