Stjórn Skáksambands Íslands boðar hér með til aðalfundar Skáksambandsins í samræmi við 8. gr. laga SÍ.
Fundurinn verður haldinn laugardaginn 13. júní 2020 kl. 10:00 í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Minnt er á 9. grein laga SÍ en sú grein hljóðar svo:
Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi á hvert félag eitt atkvæði enda hafi það a.m.k. 10 félagsmenn með lögheimili á Íslandi í Keppendaskrá Skáksambandsins tveim vikum fyrir aðalfund. Eitt atkvæði bætist við hjá félagi fyrir hverja sveit sem það sendir í Íslandsmót skákfélaga það árið. Við atkvæðagreiðslu um kjörbréf í upphafi fundar skal gilda sú regla, að hvert félag fari ekki með fleiri atkvæði en það hafði á aðalfundi árið áður. Enginn fulltrúi getur farið með meira en eitt atkvæði á fundinum. Við atkvæðagreiðslur á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða, nema um þau mál sem sérstaklega eru tilgreind í þessum lögum.
Einnig skal bent á 6. grein:
Standi aðildarfélag í gjaldfallinni skuld við sambandið hefur það ekki rétt til að eiga fulltrúa á aðalfundi. Skákdeildir í félögum geta átt aðild að sambandinu, enda hafi þá minnst 10 menn bundist slíkum samtökum. Heimilt er tveimur eða fleiri aðildarfélögum í sama landshluta að stofna með sér svæðissamband.
Meðfylgjandi er sex lagabreytingatillögur sem bárust auk einnar greinargerðar (samtals sjö viðhengi).
- Lög SÍ – breyting á 3. grein og ný grein (HGE-PRP)
- 17. og 18. grein skáklaga – niðurfelling sérákvæða (HÞH-OÁO)
- 18. grein skáklaga – nýtt sérákvæði (OAO-ÞM)
- 18. grein skáklaga – breyting á sérákvæði (KGH)
- 18. grein skáklaga – nýtt ákvæði (HGE-OAO)
- Skáklög SÍ samræming 2020 (HGE)
- Umfjöllun um samræmingu lagatextans í Skáklögum SÍ
















