Hörðuvallaskóli hefur titil að verja á Íslandsmóti barnaskólasveita.

Íslandsmót barnaskólasveita og Íslandsmót grunnskólasveita fara fram í Rimaskóla helgina 23. og 24. maí. Barnaskólamótið fer fram á laugardeginum (1.-7. bekkur) og grunnskólamótið (1.-10. bekkur) á sunnudeginum. Athygli er vakin á því að sömu keppendur geta teflt á báðum mótum.

Ákveðið hefur verið að takmarka fjölda sveita frá hverjum skóla við tvær sveitir í hvoru móti. Einnig er gerð krafa til þess að aðeins einn liðsstjóri fylgi sveitum frá hverjum skóla.

Vegna takmarkana sem eru í gildi af hálfu stjórnvalda, þar sem meðal annars kemur fram að keppnir barna á grunnskólaaldri eigi að vera án áhorfenda, biðjum við forráðamenn að skilja við börn sín og sækja við inngang húsnæðisins.

Sjoppa, þar sem boðið er upp á greiðslur með posa, verður á staðnum fyrir krakkana.

Forráðamenn geta fylgst með úrslitum á vefnum og fjöldi mynda verða teknar og birtar að móti loknu á skak.is.

Íslandsmót barnaskólasveita 2020

Mótið fer fram laugardaginn 23. maí í Rimaskóla. Tefldar verða átta umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 8+2  mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Taflið hefst kl. 11 og ætti að vera lokið um kl. 15.

Hver skóli getur sent að hámarki tvær sveitir. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Í hverri sveit mega vera allt að tveir varamenn.

Þátttökugjöld kr. 7.500.- á  sveit. Frítt er fyrir landsbyggðarsveitir.

Veit verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar, verðlaun fyrir efstu b- sveit ásamt verðlaunum fyrir þrjár efstu sveitir af landsbyggðinni.

Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði.

Sigurvegari mótsins hlýtur rétt til þátttöku á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fyrirhugað er að fari fram í Danmörku í október nk.

Skráningu skal lokið í í síðasta lagi kl. 9 þann 22. maí. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.

Íslandsmót grunnskólasveita 2020

Íslandsmeistarar Hörðuvallaskóla árið 2019.

Mótið fer fram sunnudaginn 24. maí í Rimaskóla. Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2  mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Taflið hefst kl. 11 og ætti að vera lokið um kl. 15.

- Auglýsing -