Chessable Masters hefst í dag. Það er eitt af mótunum í mótasyrpu Magnúsar Carlsen. Þátt taka 12 skákmenn og tefla í tveimur flokkum.

Taflmennska í a-flokki hefst í dag og b-flokki á morgun. Tefld er tvöföld umferð og komast fjórir efstu úr hvorum flokki í átta manna úrslit þar sem teflt verður eftir útsláttarfyrirkomulagi.
Taflmennskan hefst kl. 14 og tefldar er atskák, 15+10.
Fyrri hluti a-flokksins hefst í dag. Carlsen og Nakamura mætast í fyrstu umferð.
- Auglýsing -















