Fyrsta mót Brim mótaraðarinnar hófst í gær með fjórum atskákum. Stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson (2507) og alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson (2338) eru efstir og jafnir með fullt hús. Níu keppendur hafa 3 vinninga. Mótið er afar vel sótt en 40 keppendur taka þátt. Fyrsta kappskákmótið hérlendis síðan samkomutakmarkanir tóku gildi.

Röð efstu manna

Töluvert hefur verið um óvænt úrslit og hafa ungir og efnilegir skákmenn úr Breiðabliki verið þar í aðalhlutverki.

Matthías Björgvin Kjartansson (1241) vann Alexander Oliver Mai (2013) í fyrstu umferð og Birkir Hallmundarson (stigalaus) lagði Sigurlaugu R. Friðþjófsdóttur (1681) að velli. Markús Orri Jóhannsson (1063) gerði jafntefli við Þór Valtýsson (1896).

Í 2. umferð vann Arnar Milutin Heiðarsson (1957) afar óvæntan sigur á Guðmundi Kjartanssyni (2467). Í 3. umferð vann áðurnefndur Matthías Björgvin svo formann Hugins, Jón Eggert Hallsson (1707).

Tvær umferðir fara fram í dag. Þá er tefld kappskák. Umferðirnar hefjast kl. 11 og 17.

Helstu viðureignir í fyrri umferð dagsins:

Mótinu lýkur svo á morgun með sjöundu umferð. Í kjölfarið fer fram hraðskákmót.

Nánar um fyrirkomulag mótsins á heimasíðu TR.

Mótið á Chess-Results.

- Auglýsing -