Ísland endaði í sjötta sæti í d-riðli 2. deild Ólympíumótsins í netskák sem lauk í gær. Frammistaðan var u.þ.b. á pari við það sem búast mátta við fyrirfram. Í gær vannst sigur Gvatemala, 4-2, jafntefli gegn Írum, 3-3, og stórtap gegn Króatíu 0-6 í lokaumferðinni.

Vignir Vatnar Stefánsson stóð sig afar vel á ungmennaborðinu en hann hlaut 5½ í 9 skákum. Batel Goitom Haile náði eftirtekarverðum árangri á stúlknaborðinu en fékk 3 vinninga þrátt fyrir að tefla við mun stigahærri keppendur í öllum umferðunum. Guðmundur Kjartansson stóð sig best karlanna en hann fékk 3 vinninga í 6 skákum. Hjá stúlkunum hlaut Lenka Ptácníková 4 vinninga í 9 skákum. Ingvar Þór Jóhanneson var liðsstjóri hópsins.

Upplýsingar um árangur íslensku liðsmannanna má finna hér.
Tyrkir, Króatar og Norðmenn komumst áfram úr riðlinum upp í úrvalsdeild. Árangur Norðmanna kom mjög á óvart enda vantar Carlsen, Tari og Hammer í lið þeirra.

Lokastöðuna má finna hér.
Framkvæmd mótsins virðist hafa verið til mikillar fyrirmyndar hjá FIDE. Þótt að til sé staðar ákveðinn leiði margra gagnvart netskák – er það mun skemmtilegra þegar um er að ræða formlega keppni og menn geta safnast saman í einhvern hóp og hist. Smá netvandamál voru í Faxafeninu. Eitthvað sem þarf að kippa í liðinn fyrir næstu sambærilegu netmót.
Björn Ívar Karlsson var með beinar útsendingar sem gengu afar vel. Helgi Áss Grétarsson kíkti oft í stúdíó til Björns.
Teflt var í skákhöll TR, Faxafeni 12.
















