Frá skákstað. Mynd: GB

Ólympíumótið í netskák var framhaldið í gær laugardag. Góður sigur vannst gegn Dönum. Töpin voru tvö – annars stórtap gegn Serbum, 1-5 en svo afar grátlegt tap gegn Tyrkjum, 2-4 þar sem útltið var lengi vel gott.

Liss var í fantaformi í dag. Mynd: GB

Lisseth Acevedo Mendez átti afar góðan dag en hún hlaut 2 vinninga í umferðunum þremur. Ungmennin Vignir Vatnar Stefánsson og Batel Goitom Haile stóðu sig einnig afar vel og hlutu 1½ vinning. Ísland hefur 4 stig eftir umferðinar 6 og eru í sjötta sæti tíu liða.

Batel fór mikinn í dag. Vann sérstaklega mikilvægan sigur gegn Dönum.

Upplýsingar um árangur íslensku fulltrúanna má finna hér. Tyrkir, Serbar og Norðmenn eru efstir með fullt hús stiga. Liðin hafa enn ekki mæst innbyrðis en það breytist á morgun. Mótstöfluna má finna hér.

Það ríkar mikil friðsæld yfir Guðmundi og Helga Áss.

Á morgun mætir Ísland liðum Írlands, Gvatemala og Króatíu. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir mætir til leiks á morgun en hún teflir frá Sviss þar sem hún er búsett.

RÚV mætti á staðinn og tók og tók viðtal við Jóhann Hjartarson. Frétt RÚV má finna hér.

Jóhann Hjartarson í viðtali við RÚV.

Björn Ívar Karlsson er með beinar útsendingar  þar sem hann fer yfir skákirnar jafnóðum og jafnvel grípur keppendur og áhorfendur í viðtöl. Samkvæmt heimildum Skák.is er afar líklegt að stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson kunni að líta við! Útsending dagsins hefst kl. 13:50 á morgun. Beinn tengill á útsendingarnar er hér.

Vignar Vatnar fór yfir lokin í skák hans gegn Dönum ásamt Birni Ívari.

Ýmsar leiðir eru til að fylgjast með skákum íslenska liðsins. Ritstjóri mælir með Followchess. Hægt er að hlaða appinu inn á síma. Tilvalið að setja appið í símann og fylgjast með Birni Ívari í tölvunni. Tengill á beinar útsendingar á Chess.com eru birtar á íslenskum skákmönnum á Facebook rétt fyrir upphaf umferða. Bæði forseti og varaforseti SÍ hafa sést á áhorfendapöllunum.

Teflt er í skákhöll TR, Faxafeni 12. Áhorfendur eru velkomnir á skákstað en minnt er á reglur um sóttvarnir og tveggja metra regluna.

Flokkur Aðalmenn Varamenn
Karl 1 Jóhann Hjartarson, stórmeistari Bragi Þorfinnsson, stórmeistari
Karl 2 Guðmundur Kjartansson, alþjóðlegur meistari Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari
Kona 1 Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
Kona 2 Hallgerður Helga Þorsteinsd., FIDE-meistari kvenna Lisseth Acevedo Mendez, alþjóðlegur meistari kvenna
Strákur Vignir Vatnar Stefánsson, FIDE-meistari Birkir Ísak Jóhannsson
Stúlka Batel Goitom Haile Iðunn Helgadóttir

 

- Auglýsing -