Magnus Carlsen jafnaði metin gegn Hikaru Nakamura í fjórða einvígi þeirra á lokamóti mótasyrpu Magnsúar. Staðan er núna 2-2. Magnús vann þriðju skák einvígisins en öðrum lauk með jafntefli. Sá vinnur mótasyrpuna sem fyrr vinnur fjögur einvígi. Fimmta einvígið sem fram fer í dag getur því skipt sköpum.
Nánar um gang mála í gær á Chess24.
Allt að sjö einvígi verða tefld í úrslitum (sá vinnur sem fyrr vinnur fjögur einvígi). Úrslitin fara fram 14.-20. ágúst.
Tefldar eru fjórar atskákir (15+10). Ef jafnt þá eru tefldar tvær hraðskákir (5+3). Ef enn jafnt þá er tefldur bráðabani (hvítur hefur fimm mínútur og en svartur fjórar) þar sem svörtum dugar jafntefli til sigurs.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
- Auglýsing -

















