Stjórn Skáksambands Íslands stefnir á að bæði landsliðs- og áskorendaflokkur Skáþings Íslands fari fram 22.-30. ágúst.
Ekki hafa hins vegar borist endanleg svör frá stjórnvöldum hvort að skákstarf fullorðna megi hefjast. Skáksamband Íslands skilaði inn sóttvarnaráætlun til heilbrigðisráðuneytisins fyrir helgi og óskaði eftir leyfi til að hefja skákstarf í samræmi við undanþágur um íþróttastarf. Það virðist flækja málin að SÍ er utan ÍSÍ en í gegnum tíðina hefur Skáksambandið verið skilgreint sem íþróttasamband að hálfu menntamálaráðuneytis þrátt fyrir það.
Málið er í farvegi innan heilbrigðisráðuneytisins sem þarf að afgreiða undanþágu fyrir Skáksambandið. Vonast er til þess að jákvætt svar berist fyrir lok vinnudags í dag.
Ef jákvæð undanþága berst í dag fer fram landsliðsflokkur fram í Álftnanesskóla og áskorendaflokkur fram í skákhöll TR. Mótin hefjast á laugardaginn.
Þegar svar berst eru komnar leiðbeiningar fyrir Skáksambandið og aðildarfélög þess um skákstarf miðað við núverandi sóttvarnarlegur.
Skákmönnum er þökkuð þolinmæðin.
















