Heimsmeistarinn, Magnús Carlsen (2863), vann allar sínar skákir á öðrum degi Saint Louis-mótsins í gær og hefur náð forystu á mótinu. Hefur 9 stig af 12 mögulegum. Ian Nepomniachtchi (2784) og Wesley So (2770) eru í 2.-3. sæti með 8 vinninga.
Mótinu verður framhaldið í kvöld kl. 18 með síðustu þremur atskákunum.
Sjá nánar á Chess.com.
Mótið fer fram 15.-19. september. Fyrstu þrjá dagana (15.-17.) eru tefldar atskákir (25+5), einföld umferð, þar sem vinningarnir telja tvöfalt. Seinni tvo dagana (18. og 19.) eru tefldar hraðskák (5+3), tvöföld umferð þar sem vinningarnir gilda einfalt.
- Auglýsing -
















