Hjörvar Steinn vann Halldór Grétar í gær. Mynd: Ríkharður.

Þriðja umferð Haustmóts TR fór fram í gærkveldi. Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2579) er efstur með fullt hús eftir sigur á Halldóri Grétari Einarssyni (2258). Bragi Þorfinnsson (2427) sem vann Sigurbjörn Björnsson (2357) er annar með 2,5 vinning. Guðmundur Kjartansson (2466) er þriðji með 2 vinninga en hann á inni frestaða skák úr fyrstu umferð. Staðan er nokkuð óljós vegna frestaðra skáka sem tefldar verða eftir helgi.

A-flokkur

Bragi vann Sigurbjörn.

Úrslit  3. umferðar

 

B-flokkur

Pétur Pálmi vann Jóhann Hjört og er efstur ásamt Alexi.

Alexander Oliver Mai (2055) og Pétur Pálmi Harðarson (2061) eru efstir í b-flokknum en tvímenningarnir tryggðu sér báðir keppnisrétt í landsliðsflokki 2021 með frábærum árangri í áskorendaflokki fyrir skemmstu. Alex vann Lenku Ptácníková (2117) í gær og Pétur hafði sigur á Jóhanni H. Ragnarssyni (1952). Lenka er í þriðja sæti með 2 vinninga.

C-flokkur

Benedikt vann Hörð Jónasson í gær.

Benedikt Þórisson (1629) og Kristján Dagur Jónsson (1591) eru efstir með fullt hús í opnum flokki.

Staða efstu manna

Fjórða umferð mótsins fer fram á sunnudaginn og hefst kl. 13. Þá verður reyndar allmörgum skákum frestað vegna EM ungmenna í netskák sem fram fer á sama tíma. Frestuðu skákirnar verða tefldar á mánu- og þriðjudagkvöld.

Opni flokkurinn á Chess-Results.

Nokkrar svipmyndir frá vettvangi.


 

Myndirnar tók Ríkharður Sveinsson.

- Auglýsing -