Helgi Áss og Hjörvar gerðu jafntefli. Hjörvar vann mótið en Helgi varð skákmeistari TR. Mynd: RS

Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur lauk í gærkveldi með spennandi umferð. Hjörvar Steinn Grétarsson vann a-flokkinn. Helgi Áss Grétarsson sem varð annar varð hins skákmeistari TR. Lenka Ptácníková vann b-flokkinn og Elvar Már Sigurðsson og Jóhann Jónsson urðu efstir og jafnir í opna flokknum.

A-flokkur

Sigurður Daði og Guðmundur gerðu jafntefli. Guðmundur varð þriðji en Daði fimmti.

Hjörvar Steinn Grétarsson (2579) og Helgi Áss Grétarsson (2401) gerðu jafntefli í hreinni úrslitskák í lokaumferðinni. Skák sem Helgi þurfti nauðsynlega að vinna til að vinna mótið. Hjörvar hlaut 8 vinninga, Helgi Áss 7½ vinning og Guðmundur Kjartansson (2466), sem gerði jafntefli við Sigurð Daða Sigfússon (2276) varð þriðji með 7 vinninga.

Mótstaflan

Mestu hækkanir

Helgi Áss hækkaði um 25 stig, Sigurður Daði um 22 stig og Guðmundur um 11 stig

 

B-flokkur

Lenka vann Þorvarð í hreinni úrslitaskák.

Lenka Ptácníková (2117) vann b-flokkinn eftir að hafa unnið hreina úrslitaskák gegn Þorvarði F. Ólafssyni (2111). Lenka hlaut 6,5 vinninga. Þorvarður varð í 2.-3. sæti með 6 vinninga ásamt Alexander Oliver Mai (2055). Lenka fær keppnisrétt í a-flokki að ári.

Mótstaflan

Mestu hækkanir

Alexander Oliver hækkaði mest allra á stigum í b-flokki.

Alexander hækkaði um 43 stig, Lenka um 15 stig og Gauti Páll Jónsson um 14 stig.

C-flokkur (opinn flokkur)

Elvar Már vann Benedikt Þórisson og ávann sér keppnisrétt í b-flokki að ári.

Elvar Már Sigurðsson (1712) og Jóhann Jónsson (0) urðu efstir og jafnir með 7,5 vinninga. Batel Goitom Haile (1587) varð í þriðja sæti með 7 vinninga.

Jóhann Jónsson vann Ingvar Wu og mun birtast sem á næsta stigalista FIDE með há byrjunarstig.

Lokastaða efstu manna

Mestu hækkanir

Batel Goitom Haile hækkar um 72 stig á mótinu!

Bjartur Þórisson hækkaði um 75 stig, Batel um 72 stig, Adam Omarsson um 42 stig. Eftirtaldir hækkuðu um 10 stig eða meira.

Thorisson Bjartur 75
Haile Batel Goitom 72
Omarsson Adam 42
Briem Gudrun Fanney 40
Orrason Arnar Freyr 34
Heidarsson Mikael Bjarki 28
Moller Tomas 26
Omarsson Josef 25
Skarphedinsson Ingvar Wu 24
Thorisson Benedikt 23
Thorsteinsson Thorsteinn Jakob F 22
Stefansson Benedikt 20
Olafsson Arni 19
Kjartansson Matthias Bjorgvin 18
Sigurdsson Elvar Mar 14
Helgadottir Idunn 10

 

 

Nokkrar svipmyndir frá vettvangi (Ríkharður Sveinsson)

Bragi náði fjórða sæti á mótinu.
Iðunn ein af fjöldmörgum ungum og efnilegum skákkonum.
Guðrún Fanney Briem átti gott mót og hækkaði mikið á stigum.
Jon Olav var yfirdómari mótsins.
Hjörvar áhugasamur um taflmennsku ungu krakkanna.

 

- Auglýsing -