Þrettán keppendur skráðu sig til leiks á Haustmóti SA sem hófst í dag, 4. október. Í þessum eru alls níu keppendur á grunnskólaaldri og aldursmunur yngsta og elsta keppandans 66 ár. Skákin er svo sannarlega fyrir alla. Fátt bar til stórtíðinda í upphafsumferðinni og var stríðsgæfan greinilega reyndari keppendum hliðholl. Helst var það í skák Stefáns og Tobiasar að æskan léti til sín taka; sá síðarnefndi stóð heldur betur í tvísýnu miðtafli þegar hann lét af sér drottningunni og mátti gefast upp. Þannig fóru leikar:
Smári Ólafsson-Alexía Lív Hilmisdóttir 1-0
Gunnar Logi Guðrúnarson-Andri Freyr Björgvinsson 0-1
Jökull Máni Kárason-Sigurður Eiríksson 0-1
Emil Andri Davíðsson-Brimir Skírnisson 1-0
Sigþór Árni Sigurgeirsson-Arna Dögg Kristinsdóttir 1-0
Stefán G Jónsson-Tobias Matharel 1-0
Markús Orri Óskarsson valdi yfirsetu 1/2
Sjá úrslit á chess-results
Önnur umferð verður tefld á fimmtudag og hefst kl. 18. Röðun verður birt á morgun.














