Altibox Norway Chess-skákmótið hefst í dag í Stafangri í dag. Fyrsta stórmótið í borðskák síðan áskorendamótið hófst en lauk ekki í Katrínaborg í apríl sl. Fyrsta borðskákmót Magnúsar Carlsen í sjö mánuði. Magnús teflir við Levon Aronian í fyrstu umferð.
Sex skákmenn tefla að þessu sinni – ekki 10 eins og í gegnum tíðina. Tefld er tvöföld umferð. Kappskák og svo bráðabani verði jafntefli.
Keppendalistinn er skemmtileg blanda af sterkustu skákmönnum heims og ungum og framtíðarskákmönnum.
Í kappskákinni verða tímamörkin óvenjuleg. Tvær klukkustundir á skákina og enginn viðbótartími fyrr en eftir 40 leiki en þá fá keppendur 10 sekúndur á hvern leik. Verði jafntefli verður tefldur bráðabani. Hvítur fær tíu mínútur gegn sjö mínútum svarts. Svörtum dugar jafntefli. Fyrir sigur í hefðbundinni skák eru gefin 3 stig. Fyrir sigur í bráðabana er gefið 1,5 stig en 1 stig fyrir tap í bráðabana.
Umferðir hefjast kl. 15. Vladmir Kramnik og Judith Polgar verða með skákskýringar.
Nánar um mótið á Chess24.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjst kl. 15)















