Altibox Norway Chess-skákmótið hófst í gær í Stafangri. Fabiano Caruana vann Aryan Tari og Alireza Firouzja vann Jan-Krzysztof Duda í uppgjöri ungstirnana. Magnús Carlsen og Levon Aronian gerðu jafntefli en heimsmeistarinn vann bráðabanaskák þeirra.
Önnur umferð fer fram í dag. Þá teflir Carlsen við Firouzja.
Umferðir hefjast kl. 15. Vladmir Kramnik og Judith Polgar verða með skákskýringar.
Staðan eftir fyrstu umferð

Fyrirkomulag mótsins
Í kappskákinni verða tímamörkin óvenjuleg. Tvær klukkustundir á skákina og enginn viðbótartími fyrr en eftir 40 leiki en þá fá keppendur 10 sekúndur á hvern leik. Verði jafntefli verður tefldur bráðabani. Hvítur fær tíu mínútur gegn sjö mínútum svarts. Svörtum dugar jafntefli. Fyrir sigur í hefðbundinni skák eru gefin 3 stig. Fyrir sigur í bráðabana eru gefin 1,5 stig en 1 stig fyrir tap í bráðabana.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 15)














