Verðlaunahafar á Friðriksmótinu 2019.

Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák – fer fram að þessu sinni  á netinu og verður háð í tveimur hlutum. Úrslitakeppni fer fram laugardaginn 12. desember á Tornelo en undankeppni miðvikudaginn 9. desember á Chess.com. Boðið verður upp á beinar útsendingar í umsjón Björns Ívars  og Ingvars fyrir skákáhugamenn í úrslitakeppninni.

Í undankeppninni verður barist um fjögur sæti í úrslitakeppninni og aukaverðlaun. Tímamörk verða 3+2 og tefldar verða 11 umferðir. Stuðst verður við oddastigareglur Chess.com.

Í úrslitakeppninni fá tíu stigahæstu skákmenn landsins beina keppnisrétt sem og stjórn Skáksambands Íslands úthlutar tveimur boðssætum.

Í úrslitakeppninni verður skylda að fyrir keppendur að vera í mynd, tengdir við Zoom-forritið og deila skjánum með skákstjóra. Að öðrum kosti missa menn rétt til verðlauna.

AÐALVERÐLAUN

  1. 100.000 kr.
  2.   60.000 kr.
  3.   50.000 kr.
  4.   30.000 kr.
  5.   20.000 kr.

Séu tveir eða fleiri jafnir í efsta sætinu verður oddastigaútreikningur látinn ráða Íslandsmeistaratitlinum. Verðlaunafé skiptist jafnt.

AUKAVERÐLAUN 

Aukaverðlaunin eru útkljáð í undankeppninni og fara fram eftir hefðbundnum reglum.

  • Efsti maður með 2001-2200 skákstig 20.000 kr.
  • Efsti maður með 2000 stig og minna: 10.000 kr.
  • Efsta konan: 10.000 kr.
  • Efsti strákur 16 ára og yngri (2004 eða síðar): 10.000 kr.
  • Efsta stúlka 16 ára og yngri (2004 eða síðar): 10.000 kr.
  • Efsti skákmaður 65 eða eldri (1955 eða fyrr): 10.000 kr.

Aukaverðlaun eru miðað við alþjóðleg hraðskákstig 1. desember sl. (alþjóðleg skákstig til vara hafi menn ekki alþjóðleg hraðskákstig). Oddastigaútreikningur Chess.com ræður séu menn jafnir og efstir.

Hver keppandi getur aðeins unnin ein aukaverðlaun og eru aukaverðlaunin valin í þeirri röð sem fram kemur að ofan.

FYRRI SIGURVEGARAR

  • 2019 – Jón Viktor Gunnarsson
  • 2018 – Jóhann Hjartarson
  • 2017 – Hannes Hlífar Stefánsson
  • 2016 – Jóhann Hjartarson
  • 2015 – Þröstur Þórhallsson
  • 2014 – Héðinn Steingrímsson
  • 2013 – Helgi Ólafsson
  • 2012 – Bragi Þorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Jón Viktor Gunnarsson
  • 2011 – Henrik Danielsen
  • 2010 – Jón Viktor Gunnarsson og Þröstur Þórhallsson
  • 2009 – Héðinn Steingrímsson
  • 2008 – Helgi Ólafsson
  • 2007 – Héðinn Steingrímsson
  • 2006 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2005 – Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson
  • 2004 – Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson
- Auglýsing -